Afhverju í
ósköpunum getur maður ekki stjórnað veðrinu? Mikið óskaplega
er ég orðin pirruð á þessum sumarskorti eða kannski
stríðninni í því. Það koma nokkrir góðir dagar, hefðu samt
mátt vera betri, og svo hvað blasir við manni í kortunum...
RIGNING!!! Úúú, það sýður næstum á mér. Loksins þegar að
manni langar að fara út að labba þá er béskotans rok og
rigning. Hins vegar þá er sól fyrir norðan og kemur það ekki
nokkrum manni á óvart. Ég er kannski fullfljót í pirringnum
þar sem að það er nú bara 1.júní but I can´t help it!
Það hjálpar heldur ekki að ég er komin með kvef og hálsbólgu,
er reyndar að minnka en til staðar samt.
Svo skil ég ekki afhverju
ég hangi yfir sjónvarpinu en fer ekki að sofa. Var að enda við að
horfa á Bachelorinn, ó mæ, ætla þeir aldrei að hætta með þessa
seríu. Það hefur einungis eitt samband gengið upp í þessum
þáttum.
Annars er lífið ljúft,
sund í fyrramálið hressir, bætir og kætir. Við erum svo að spá
í að kíkja á Sjóarann síkáta en veðrið er nú ekki að lokka okkur.
Planið er svo að fara í útilegu næstu helgi, skírn helgina eftir
það, svo líklega austur helgina þar á eftir og svo er það ættarmót
jibbí!!! Reyndar erum við í ungbarnasundi til 23.júní og svo erum
við laus allar helgar, alla helgina.
Kristjana frænka er komin
í heimsókn frá USA og það er alltaf jafngaman að hitta
hana.
Svo var ég að tala við Louise vinkonu á msn
um daginn og hún ætlar að skoða þann möguleika á að kíkja á
klakann í sumar. Mikið djö... vona ég að hún komi.

Ég er búin að fá inn í
HÍ, skv. netinu, og er búin að sækja um stúdentaíbúðir
upp á Velli og í Rvk. Við erum búin að flísaleggja
eldhúsið, loksins, og það er looking gorgeous!!! Allir velkomnir í
kaffi að kíkja á fína eldhúsið okkar. Nú er bara planið að setja
íbúðina á sölu þegar að við erum búin að fá á hreint hvað íbúðin
okkar er stór.
Jæja, ætla að klára
að horfa á Kidnapped og/eða fara að sofa.
Adios...